oryrki.is snýst um grín, samfélag og reynslu fatlaðs fólks. Við fjöllum um fötlun, aðgengi og sjálfstætt líf. Við tökum líka fyrir kerfið sjálft. Húmorinn fær að vera með, líka þegar málin eru alvarleg.
Um oryrki.is verkefnið
oryrki.is er íslenskt gleði, grín og samfélagsverkefni. Hér segir fatlað fólk sjálft frá. Við tökum pláss, hlæjum hátt og gerum grín að hlutum sem margir þekkja.
Stundum eru aðstæðurnar svo fáránlegar að það er ekki annað hægt en að hlæja. Stundum eru þær pirrandi. Og stundum verða þær einfaldlega að efni í skets.
Verkefnið byrjaði sem vettvangur fyrir ungt fatlað fólk. Markmiðið var að breyta ímynd öryrkja og fatlaðs fólks. Ekki með leiðinlegum bæklingi eða þurru stofnanamáli. Heldur með sketsum, myndböndum, tónlist, útvarpi og góðum skammti af sjálfshæðni.
Þegar fólk les um okkur á oryrki.is á það ekki bara að sjá sögu um fötlun. Það á líka að sjá sögu um húmor, vináttu, baráttu og sköpun. Við viljum sýna að fatlað fólk er ekki bara umræðuefni. Við erum fólkið sem talar, grínast, gagnrýnir og segir söguna sjálft.
Í gegnum árin hefur oryrki.is fjallað um margt. Þar má nefna aðgengismál, Sjúkratryggingar, NPA og daglegt líf fatlaðs fólks. Við höfum líka fjallað um vandræðaleg augnablik og skrýtnar aðstæður. Þetta er líf sem margir fatlaðir einstaklingar þekkja allt of vel.
Markmiðið hefur alltaf verið einfalt. Fatlað fólk á að vera sýnilegt. Það á að heyrast hátt. Og það á að fá að vera meira en greiningar, eyðublöð, biðlistar og kerfisvesen.
Nú fær oryrki.is nýtt líf með gömlu góðu sketsunum. Við bætum líka við nýju efni, hlaðvarpi og áframhaldandi spjalli. Hér verður rætt um lífið, réttindi, aðgengi og allt hitt sem þarf að ræða. Helst með smá húmor í bland.
oryrki.is er því ekki bara vefsíða. Þetta er smá uppreisn, smá grín, smá saga og vonandi góð skemmtun.
Samfélagsmiðlar
Ef þú hefur áhuga á einhverskonar samstarfi getur þú heyrt í Andra á andri@oryrki.is.

Tékkið á okkur á samfélagsmiðlum og endilega deilið:
